Reykkafarar á ćfingu
Reykkafarar á ćfingu
Slökkviliðsmenn BÁ stóðu fyrir reykköfunaræfingu s.l. laugardagsmorgun í húsi einu á Selfossi sem slökkviliðið hefur til æfinga um þessar mundir. Um er að ræða tveggja hæða timburhús sem hentar mjög vel fyrir þessar æfingar og ekki skemmir að húsið er mjög nærri slökkvistöðinni.  Slökkviliðsmenn frá Þorlákshöfn komu uppeftir, þ.e.a.s. á Selfoss en félagar þeirra í liðinu á Selfossi fóru í Höfnina og stóðu vaktina á meðan æfingin fór fram, c.a. 3-4 tíma.
Æfingin tókst vel og menn ánægðir að fá þetta tækifæri í húsinu.
Mynd: Péturs Péturssonar
Kristján Einarsson föstudagurinn 18. mars 2011

Fundur um húsnćđismál

3 fermetrar. Á skrifstofu Péturs, (situr greyiđ, hefur ekki ţrek ađ standa) ţar eru málin krufin til mergjar.
3 fermetrar. Á skrifstofu Péturs, (situr greyiđ, hefur ekki ţrek ađ standa) ţar eru málin krufin til mergjar.
Föstudagur 18.3.2011
Í morgun fór fram fundur um húsnæðismál nýju slökkvistöðvarinnar sem nú hyllir undir að við förum í.
Ákveðið var að halda fundinn í skrifstofu Péturs varaslökkviliðsstjóra sem er staðsett fram í geymslu í gömlu stöðinni að Austurvegi 52 Selfossi.
Þetta var gert til að auka enn frekar á víðáttubrjálæðistilfinninguna sem við eigum eftir að verða fyrir þegar komið verður í nýja húsið.
Núverandi skrifstofa Péturs er ca. 3 fermetrar.
Fyrir voru tveir gestir hjá Pétri og tóku þeir þátt í fundinum. Fundurinn fór vel, menn nálguðust hver annan og umræður voru innilegar.

Eftir fundinn var farin könnunarferð í nýja húsið. Þar voru iðnaðarmenn í hverju rými og mikið að gera.
Húsið er óðum að taka á sig lokamynd.

Kristján Einarsson föstudagurinn 18. mars 2011

„Framúrskarandi fyrirtćki 2011"

Ţessir tveir eru á Selfossi, báđir keyptir hjá Óla Gísla og co.
Ţessir tveir eru á Selfossi, báđir keyptir hjá Óla Gísla og co.
« 1 af 2 »
Fyrirtækið Ólafur Gíslason & Co. hf , Eldvarnamiðstöðin er það fyrirtæki sem lengst hefur þjónað slökkviliðum landsins. Brunavarnir Árnessýslu hafa lengi verið í viðskiptum við þetta fyrirtæki og líkað mjög vel. T.d. eru allir stóru slökkvibílar BÁ , sjö talsins, keyptir hjá þessu fyrirtæki eða í gegnum þá.
Nú á dögunum fengu þeir hjá Óla Gísla viðurkenningu hjá Creditinfo þess efnis að þeir væru meðal 177 fyrirtækja sem teljast „Framúrskarandi fyrirtæki 2011"
Sjá nánar um þessa viðurkenningu hér
Kristján Einarsson miđvikudagurinn 9. mars 2011

Heima (smíđađ) er best !!

Áhugi sl.manna í Árnesi ósvikinn.
Áhugi sl.manna í Árnesi ósvikinn.
« 1 af 2 »
Slökkviliðsmenn BÁ hafa verið að kynna félögum sínum nýju reykköfunarborðin sem tveir snillingar úr röðum liðsmanna smíðuðu á dögunum.
Borðin þykja hafa heppnast mjög vel og stendur nú til að hefja smíði borða fyrir allar starfsstöðvar BÁ.
Myndirnar með þessum skrifum eru frá kynningafundi í Árnesi sem fram fór nú á dögunum.
Nýja slökkvistöđin í byggingu voriđ 2008
Nýja slökkvistöđin í byggingu voriđ 2008
« 1 af 2 »

Verklegar framkvæmdir eru hafnar við lokafrágang á nýju slökkvistöðinni við Árveg 1 Selfossi.
Samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum eigenda sem er Sveitarfélagið Árborg er mögulegt að hefja flutning á búnaði slökkviliðsins upp úr næstu mánaðarmótum.

Þá á öllum framkvæmdum að vera lokið innandyra, verkefnum utanhúss á síðan að ljúka fyrir haustið.
Áformað er að nota sumarið til að koma slökkviliðinu fyrir í húsnæðinu.
Vígsluathöfn gæti orðið í lok sumars.


Sala á Austurvegi 52 - slökkvistöð
Samþykkt hefur verið kauptilboð frá fyrirtækinu Melhæð sf. í Austurveg 52 og 52a (gömlu slökkvistöðina).
Melhæð sf. hefur heimilisfang að Kjóastöðum 2. í Bláskógabyggð.
Ekki er vitað hvað fyrirtækið hyggst gera við húsið.

Debug window