Kl. 21.00 í gærkvöldi (6.1.2011) komu boð frá Neyðarlínu þess efnis að sina logaði við sumarhús í landi Syðri Brúar í Grímsnesi. (Rétt við virkjanirnar við Sog) Eldur væri töluverður og breyddist hratt út. Sumarhús hugsanlega í hættu.
Frost allt að -11° var á staðnum og vindur u.þ.b. 20 metrar. Húsráðendur sumarhússins voru með gleðskap og skutu upp flugeldum með fyrgreindum afleiðingum. (Nokkuð sem fólk ætti EKKI að gera við þessar aðstæður) Allt liðið á Selfossi var kallað út sem fóru á staðinn á sex bílum. Nokkuð greiðlega gekk að slökkva eldinn en mönnum varð verulega kalt í veðurhamnum.
Frágangi var lokið á slökkvistöð um miðnætti.
Útkall þetta má eingöngu skrifa á óvarkárni og lélegs mats flugeldaskotmanna á aðstæðum.
Myndir: Guðmundur Karl Sigurdórsson

Eldur varð laus í eldhúsi í íbúðarblokkinni að Fossheiði 60 Selfossi um kl. 9.20 í morgun, 6.1.2011.
Lögregla og slökkvilið fóru á staðinn. Lögreglumenn höfðu brotið upp hurðina að íbúðinni sem hljóð frá reykskynjara komu frá.
Íbúar í húsinu urðu varir við lygt og reyk frá mannlausri íbúðinni.
Lögreglumaður var með léttvatnstæki með sér og beindi því að eldinum sem var kominn í innréttinguna í eldhúsinu.
Eldurinn slökknaði og slökkviliðsmenn reykræstu íbúðina og stigaganginn á þessari tveggja hæða blokk.
Sennilegt þykir að kviknað hafi í út frá kerti sem logaði á borðinu.
Myndir: Magnús Hlynur Heiðarsson

Eldvarnamiðstöðin í Reykjavík flytur inn og selur flotælur sem e.t.v. eru vænlegur kostur fyrir skógarændur og sumarhúsaeigendur sem hugsanlega þurfa að berjast við elda í skógi og kjarri + sinu.
Sjá heimasíðu Eldvarnamiðstöðvarinnar
Sjá heimasíðu Eldvarnamiðstöðvarinnar
Mánudaginn 20 desember s.l. kl. 13.15 var kveðin upp dómur í Héraðsdómi Suðurland þess efnis að BÁ væru sýknað af kæru SUT fyrirtækisins á Selfossi vegna kröfu um leigugjald fyrir slökkvibifreið.
Stefnanda gert að greiða málskostnað.
Málavextir voru þeir að sumarið 2007 bauð Sigurður Þór Ástráðsson, þáverandi framkvæmdastjóri SUT fyrirtækisins slökkviliðsstjóra að slökkvibíll sem fyrirtækið var með í sölu yrði staðsettur á slökkvistöðinni, ótilgreindan tíma, á meðan beðið var eftir nýjum slökkvibíl til BÁ frá Póllandi. Gamall slökkvibíll hafði bilað og var slökkviliðsstjóri með lánsbíl í hendi þegar boðið kom frá Sigurði. Engin leigusamningur var gerður og Sigurði tjáð að ekki yrði greitt fyrir stöðu bílsins. Sigurður taldi það ávinning fyrir fyrirtæki sitt að bíllinn stæði á slökkvistöðinni á meðan söluferlið stæði yfir. Slökkviliðsstjóri áleit að um greiða við Sigurð væri að ræða enda var hann varavarðstjóri slökkviliðsins um þessar mundir.
Slökkviliðsmenn fengu að kynna sér kosti bílsins á meðan hann var staðsettur hjá BÁ undir eftirliti Sigurðar.
S.l. haust (2010) gerðu núverandi eigendur SUT ehf. tæplega milljón kr. kröfu á BÁ um leigu fyrir bílinn þá 102 daga sem hann var á slökkvistöðinni á Selfossi. BÁ urðu ekki við þeirri kröfu og var því höfðað mál á hendur BÁ sem tekið var til dóms nú í desember og dæmt í málinu s.l. mánudag.
Meira

Niðurstöðuorð dómsins eru á þessa leið:
(Dómurinn í heild sinni er hér að neðan)
Meira