Guðmundur Böðvarsson miðvikudagurinn 24. september 2008

Tetra æfing í uppsveitum !

þetta er hópurinn sem var á æfingunni saman kominn í stöðinni í  Reykholti
þetta er hópurinn sem var á æfingunni saman kominn í stöðinni í Reykholti
Laugarvatn og Reykholt voru með sameiginlega talstöðvaræfingu í gærkvöldi.
Guðmundur Böðvarsson var með kynningu og kennslu á nýju tetra og vhf talstöðvarnar....
Meira
Kristján Einarsson þriðjudagurinn 23. september 2008

Kynningarferðin um næstu helgi.

Munið ferðina til Reykjavíkur n.k. laugardag.
Skoðun á 112 og fl.
Viðar Ara sér um framkvæmd ferðarinnar og tekur á móti umsóknum.
Kristján Einarsson þriðjudagurinn 23. september 2008

Hermann Geir Karlsson hættur í slökkviliðinu

Hermann Geir Karlsson slökkviliðsmaður á Laugarvatni er hættur í slökkviliðinu, a.m.k. í bili.
Hermann mun nú flytja til Reykjavíkur þar sem fjölskyldan mun búa næstu tvö ár a.m.k.
Kona Hermanns mun stunda þar nám.
Hermann áformar að koma aftur á Laugarvatn og vill þá hefja störf aftur hjá liðinu.
Við óskum honum og hans fólki verfanaðar og þökkum fyrir gott starf hjá BÁ.
Kristján Einarsson miðvikudagurinn 10. september 2008

Fræðsluferð til Reykjavíkur !

Skemmtiferð slökkviliðsmanna 27.sept

 

Sælir félagar

 

Vegna kaupa á nýjum mannskapsbíl langaði mig að við í Brunavörnum Árnessýslu mundum gera okkur góðan dag og fara saman í skemmtiferð.

Ég er búinn að bóka okkur í heimsóknir til Neyðarlínu 112, Þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar og að sjálfsögðu til félaga okkar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja. Og get ég sagt ykkur það að menn þar í bæ hlakka mikið til að fá okkur í heimsókn, enda hafa þeir verið duglegir að heimsækja okkur.

 

Stefnan er að hittast á slökkvistöð kl. 11:00 laugardagmorguninn 27.sept Byrja svo daginn á að skoða Þyrlusveit LHG fara þaðan að skoða varðstofu

112 og fara fara svo til félaga okkar á suðurnesjum. Eftir það væri gaman að borða góðan mat og svo er kvöldið allt í höndum ykkar.

 

Þeir sem vilja skrá sig eru beðnir um að gera það sem fyrst með að senda mér póst á vidar@sjukrabill.is og svo má líka ná í mig í síma 8242827.

 

Ath. Það er mjög mikilvægt að menn skrái sig sem fyrst svo fjöldi manna verði komin á hreint fyrir vikulok.

 

Hlakka til að sjá ykkur og eiga með ykkur góðan dag.

 

Viðar Ara

vidar@sjukrabill.is

S.8242827

 

Ps. Gott er að hafa bakkus á hreinu ef svo á við..

Guðmundur Böðvarsson fimmtudagurinn 4. september 2008

BÁ Laugarvatni æfing

Æfing á Laugavatni n.k. miðvikudagskvöld 10.09.2008
Mæting á stöð kl. 20

...
Meira
Fyrri síða123456
7
Næsta síða
Síða 7 af 7
Debug window