Innskráning

laugardagurinn 19. júlí 2008

Venjubundin föstudagsćfing

Sundlaugin tekur tćplega 10 ţusund lítra
Sundlaugin tekur tćplega 10 ţusund lítra
« 1 af 8 »

Venjubundin föstudagsæfing var haldin i gær framan við slökkvistöðina á Selfossi. Sjö slökkvilismenn voru á æfingunni en á henni var farið yfir búnað á báðum dælubílunum auk tankbílsins.  Aldrei er of oft farið yfir búnaðinn því þegar mest á reynir er gott að hafa á hreinu hvar hlutirnir eru í bílunum þegar á þeim þarf að halda. Þá var einnig sett vatn í "sundlaugina" og prufað að dæla uppúr henni. Eins og ávalt var æfingin mjög gagnleg og gott þegar mannsakpurinn hittist til að bera saman bækur sínar.

...
Meira
laugardagurinn 5. júlí 2008

Varđstjóramál - breytingar

Ólafur Kristmundsson í kaffipásu
Ólafur Kristmundsson í kaffipásu
Ólafur Kristmundsson, varðstjóri á Selfossi hefur ákveðið að hætta sem varðstjóri. Hann ætlar þó ekki að hætta í slökkviliðinu og vill starfa áfram án þeirrar ábyrgðar sem fylgir varðstjórastarfinu. Ólafur er einn okkar besti félagi og góður varðstjóri og slökkviliðsmaður, hann hefur verið í liðinu í fjöldamörg ár....
Meira
Slökkviliðsmönnum hjá Brunavörnum Árnessýslu var heldur betur komið á
óvart um daginn þegar Svala Þrastardóttir, slökkviliðsmaður rogaðist inn á kaffistofu slökkviliðsins á Selfossi með tvo stóra kassa.
Kassarnir höfðu að geyma 75 kaffibolla með merki BÁ og númeri hvers
slökkviliðsmanns í liðinu.
...
Meira
laugardagurinn 5. júlí 2008

Föstudagsćfing

« 1 af 4 »

Yfir sumarmánuðina standa slökkviliðsmenn bakvaktir frá föstudegi til mánudags og var fyrsta helgin í júlí engin undantekning þar á enda ein stærsta ferðahelgi ársins. Í upphafi bakvaktar mæta menn á stöð og þá er haldin æfing þar sem menn fara yfir búnað, vinnubrögð og vinnuferla enda aldrei of sjaldan tekið á hlutunum.

...
Meira
mánudagurinn 23. júní 2008

Slökkviliđsmenn gefa BÁ Tetra talstöđvar

Einar Örn Arnarsson, Ţórir Tryggvason og Börkur Brynjarsson, söfnuđu fyrir Tetra-talstöđvum
Einar Örn Arnarsson, Ţórir Tryggvason og Börkur Brynjarsson, söfnuđu fyrir Tetra-talstöđvum

Þrír slökkvilismenn úr slökkviliði Brunavarna Árnessýslu tóku sig til og hófu söfnun fyrir slökkviliðið til kaupa á Tetra talstöðvum. Tetra fjarskiptakerfið er í dag að talstöðvarkerfi sem flestir viðbragðsaðilar eru farnir að nota og þykir það öruggasta fjarskiptakerfið á landinu, og jafnvel í heiminum í dag, og sannaði það sig og stóðst það undir væntingum í jarðskjálftunum 29. maí s.l.


...
Meira
Debug window